2013 - 2026
NÆSTA HÁTÍÐ
19. - 21. mars 2026
Hafaldan háa hvað viltu mér
Ljóð og líf Jónasar Hallgrímssonar skálds og Júlíönu Jónsdóttur skáldkonu
Júlíana - hátíð sögu og bóka 2026
Þrettánda Júlíönu hátíð verður haldin í Stykkishólmi dagana 19. - 21. mars 2026. Sem fyrr verður metnaðarfull dagskrá þar sem rithöfundar, ljóðskáld og fleiri listamenn stíga á stokk.
Frítt er á alla viðburði
Viðburðir 2026
〰️
Viðburðir 2026 〰️
Útgáfa nýrrar bókar
Ljóðmæli - Stúlka & Hagalagðar
Júlíana Jónsdóttir í Akureyjum var fyrst íslenskra kvenna til þess að fá gefna út bók eftir sig. Það var ljóðabók sem nefndist Stúlka og kom út árið 1876. Löngu síðar kom út önnur ljóðabók eftir Júlíönu, sem þá var orðin roskin og flutt til Vesturheims; sú nefndist Hagalagðar.
Á afmælisári beggja bókanna koma þær nú út saman í einu bindi, önnur 150 ára gömul og hin 110 ára. Ljóðin bera aldurinn vel og vitna um leiftrandi gáfur, seiglu og skopskyn Júlíönu sem var vinnukona frá ungaaldri og hlaut enga formlega skólagöngu.
Silja Aðalsteinsdóttir og Sólveig Ásta Sigurðardóttir rita for- og eftirmála.
Umfjöllun í fjölmiðlum
Ljóða- og smásagnasamkeppni
Eitt af verkefnum Júlíönu - hátíðar er að standa fyrir árlegri ritsamkeppni. Annað hvert ár er ljóðasamkeppni og hitt árið er smásagnasamkeppni . Árið 2026 er ljóðasamkeppni auk þess sem veitt verða verðlaun í ljóðasamkeppni Grunnskólanemenda á Vesturlandi.
Júlíana hátíð 2026
Leshópar lásu Ferðalok
Fyrir hverja hátíð hittast leshópar, einn í Stykkishólmi og annar í Reykjavík, og lesa bók sem tengist komandi hátíð með einhverjum hætti. Sú bók sem varð fyrir valinu í ár var skáldsagan Ferðalok eftir Arnald Indriðason. Ólafur K. Ólafsson stýrði leshópnum í Stykkishólmi og Silja Aðalsteinsdóttir stýrði hópnum í Reykjavík.
Þátttakendur á hátíð 2023
Við fengum til okkar marga áhugaverða gesti og ber þar fyrst að nefna frú Elízu Reid, rithöfund og forsetafrú sem fjallaði um bók sína Sprakkar.
Einnig komu rithöfundarnir Ana Mjallhvít Drekadóttir, Jakub Stachowiak og Victoria Bakshina sem tóku þátt í höfundaumræðu ásamt Elízu Reid en henni stýrði Jón Yngvi Jóhannsson, bókmenntafræðingur.
Þá kom hin úkraínska söngkona og tónskáld, Alexandra Chernyshova og flutti óperuaríur úr verkum sínum með kirkjukór Stykkishólmskirkju við undirleik organistans László Petö .


Páll Valsson mun fjalla um Jónas Hallgrímsson í erindi sínu og svo verða umræður að því loknu.