Páll Valsson fjallar um Jónas Hallgrímsson
Laugardagur 21.mars kl, 14:15 í Kirkjunni á Borginni
Páll Valsson fjallur um Jónas Hallgrímsson í erindi sínu og umræðum sem fara að auki fram kl: 15:45. Erindi hans ber heitið:
„Herra Snæfellsjökull er stórkostlegur”
Hringsólað með Jónasi um Snæfellsnes
Páll er virtur fræðimaður. Hann var lektor í íslensku við Uppsala Háskólann í Svíðþjóð 1992-1997, og kennari við Menntaskólann í Hamrahlíð og Háskóla Íslands.
Páll hefur unnið við útgáfustjórn síðustu árin ásamt ritstjórn Skírnis. Eftir Pál liggja margar fræðigreinar ásamt þýðingum. Þær bækur sem hann hefur ritað eru m.a:
Jónas Hallgrímsson - ævisaga ( 1999)
Vigdís - kona verður forseti ( 2009)
Egils sögur ( ásamt Agli Ólafssyni ) (2015 )
Minn tími - saga Jóhönnu Sigurðardóttur (2017)
Nú fáum við að heyra Pál fjalla um Jónas Hallgrímsson í erindi sínu og í umræðum um Jónas Hallgrímsson. Stjórnendur umræðu eru bókmenntafræðingarnir Sigþrúður Gunnarsdóttir og Jón Yngvi Jóhansson. Þátttakendur eru Páll Valsson og Anton Helgi Jónsson.
Páll er mikill sagnamaður og er mikill fengur að fá hann á Júlíönu Hátíð.

