Myndasafn
Útgáfuhóf í Forlaginu - Júlíana Jónsdóttir í Akureyjum
Í tilefni þess að 150 ár eru frá því Stúlka kom út og 110 ár frá útgáfu Hagalagða gaf Forlagið í samvinnu við Júlíönu hátíð, út bókina Ljóðmæli: Stúlka og Hagalagðar.
Silja Aðalsteinsdóttir skrifar formála, en Sólveig Ásta Sigurðardóttir eftirmála. Bókin er hönnuð af Alexöndru Buhl.
Vel var mætt á útgáfuhófið og voru þakklætisvottar veittir þeim sem komu að gerð bókarinnar auk þess sem Stefáni Eiríkssyni, útvarpsstjóra, var gefið fyrsta einstak bókarinnar en hann er mikill safnari ljóðabóka og á eitt stærsta safn ljóðabóka hér á landi.
Myndir tók Þórhildur Einarsdóttir

