Steinunn Sigurðardóttir - skáld og rithöfundur

Laugardagur  21. mars kl 13:30 - Kirkjan á Borginni 

Steinunn Sigurðardóttir skáld og rithöfundur verður með erindi sitt  laugardaginn 21. mars kl 13.30. og nefnist það Ástarljóð til landsins þar sem hún ræðir ástarland sitt og Jónasar Hallgrímssonar.

Nú fáum við að heyra  Steinunni segja frá. Í fyrirrúmi mun hún spjalla um ljóðabálkinn sinn Dimmumót, og fjalla um deyjandi Vatnajökul

Steinunn er eitt okkar vinsælasta skáld og rithöfundur og eftir  hana liggja margar vinsælar bækur bæði ljóða-, ævisagna- og sögubækur. Steinunn hlaut öðru sinni íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2024 fyrir bókina BÓL. Einnig hlaut hún  verðlaun Jónasar Hallgrímssonar árið 2024 .

Steinunn varð heiðursdoktor við Háskóla Ísland 2022 og hefur gengt stöðu  ritlistarkennara  í nafni Jónasar Hallgrímssonar við Háskóla Íslands. Það er mikill fengur að fá Steinunni á Júlíönu hátíð 2026.

Previous
Previous

Afhending viðurkenninga og verðlauna

Next
Next

Útgáfuhátíð: Ljóðmæli Júlíönu